2016-10-14

Nýtt nafn fyrirtækisins

THE RENAMING PROCESS IS NOW FINISHED

Kæri viðskiptafélagi,

við erum ánægð að tilkynna að nafnabreytingu fyrirtækisins úr „Procoin International GmbH“ í „SOUTH Automation Int. GmbH“, sem tilkynnt var í síðasta mánuði, er nú lokið.

Ferlinu fylgja því miður einnig nokkur stjórnsýsluatriði. Við biðjum þig að athuga eftirfarandi:

Breytingar á netföngum okkar:

Ný netföng okkar enda á @southautomation.net. Öll persónuleg netföng verða kynnt þér sérstaklega.

Fyrirtækjaupplýsingar:

Vinsamlegast notaðu nýja fyrirtækjanafnið „SOUTH Automation Int. GmbH“ héðan í frá fyrir allar pantanir, pöntunarstaðfestingar, greiðslur og reikninga.

Allar aðrar lagalegar upplýsingar og samskiptaupplýsingar, svo sem heimilisföng, símanúmer, virðisaukaskattsnúmer, skráningarnúmer og reikningsupplýsingar, eru óbreyttar.

Aðgengi á vefnum:

Vefsíður okkar www.cashMAX.net og www.cashDNA.net eru aðgengilegar eins og áður. Innan skamms verður ný vefsíða aðgengileg á www.southautomation.net.