2017-01-08
Nýr 50 evru seðill er á leiðinni

Hjá okkur ertu öruggur
Seðlar Evrópuraðarinnar eru innleiddir á nokkrum árum. 5 €, 10 € og 20 € seðlarnir hafa þegar verið gefnir út og 50 € seðillinn fer í umferð 4. apríl 2017. Áætlað er að nýju 100 € og 200 € seðlarnir verði innleiddir um lok árs 2018. Nýi 50 € seðillinn verður, eins og áður útgefnir seðlar Evrópuraðarinnar, í umferð samhliða seðlum fyrstu raðarinnar, sem eru áfram lögeyrir. Evruseðlar halda alltaf verðgildi sínu og hægt er að skipta þeim ótímabundið hjá seðlabönkum evrukerfisins.
Hvers vegna nýir seðlar?
Öryggisþætti seðla þarf að bæta öðru hvoru til að gera þá enn betur varða gegn fölsun. Allir seðlar Evrópuraðarinnar fá einnig nýtt útlit. Það hefur nú verið gert með nýja 50 € seðlinum, sem er með andlitsmyndarglugga sem sést frá báðum hliðum ásamt öðrum endurbættum öryggisþáttum. Fyrir vikið er hann enn öruggari og áfram auðvelt að sannreyna hann.
>> Nánar um Evrópuröð evruseðla
Uppfærsla: 50 € seðill Evrópuraðarinnar hefur verið í umferð frá 4. apríl 2017 og 100 € og 200 € seðlarnir fylgdu í maí 2019.